26maí

Hahahaha

Ég sagði það þá, og stóð við það!!!!
Ég vaknaði galvaskur í morgun, leit út um gluggann og hugsaði; Gott veður fyrir trampólín...Humm...Ég á ekki trampólín....Ákvað ég þá frá þeim tímapunkti að ég skyldi skella mér á eitt slíkt, sem og ég gerði..Vil ég þakka starfsmönnum Europrís kærlega fyrir þetta fallega trampólínHlæjandi

TrampólíniðTrampólínið1
26. maí 2006 klukkan 04:25
Geir Þórir Valgeirsson
4 athugasemdir
25maí

Jæja

Ég er ekki frá því að hér sé að fæðast nýtt blogg...
Þannig er staðan að ég var að sækja um á félagsfræðibraut á næsta ári, einmitt í ML, get ekki farið..Er vongóður með að komast inn, og ef að það tekst, þá verður tekið allharkalega á því skal ég segja ykkurSvalur

En nóg um það leyðindarmál...
Annað mál á dagskrá...

Ég er byrjaður að vinna...Felst vinnan í sediferðum, sveittri gröfukallavinnu og tilfallandi...Ég gæti ekki verið meira ánægður með lífið núna...

Nóg komið af bloggi núna...Heyrumst sveitta liðÞögull sem gröfin
25. maí 2006 klukkan 04:32
Geir Þórir Valgeirsson
2 athugasemdir
19maí

Tileinkað 2.bekk árið 2005-6

Jæja, þá féll ég á ári...Ég verð ekki með ykkur elskulegur verðandi 3.bekkur...Það er rosalega súrt að sjá á eftir ykkur og að útskrifast ekki með ykkur. Ekkert dimmission með ykkur...Maður klökknar bara við að segja þetta, ótrúlegt að maður átti sig ekki á því að maður sé að falla fyrr en fallið er komið... 

Mig langar að segja við ykkur sem lesið úr gamla bekknum mínum, ss. 2.bekk að ég á eftir að sakna ykkar óendanlega mikið og vil ég þakka ykkur fyrir allar þær yndislegu stundir sem að við áttum í gegn um þessi ár sem að við vorum saman. Vonandi eiga ekki fleiri eftir að detta úr bekknum, þetta er orðið einum of margt...
Ég ætla að púnkta niður bestu stundirnar sem að mér fannst við hafa átt...


 Þegar við vorum öll að kynnast í 1. bekk

Þegar við skemmtum okkur saman á öllum böllum 1. bekkjar

Þegar við hittumst eftir jólin í 1. bekk

Þegar við hittumst á Bubbu

Þegar við komum saman aftur í 2. bekk 2005

Þegar við skemmtum okkur á vistinni eins og okkur einum var lagið

Öll böllin okkar saman

Skyldó eftir áramótin

Tíminn eftir páskafrí


Þetta er svona það helsta, en þetta er nátturlega ekki næstum því allt...

En munið það að ég elska ykkur öll og þó svo að maður fari, þá man maður alltaf eftir ykkur, sama hversu langt í burtu maður fer....

Kv. Geir Þórir ykkar fyrrverandi bekkjarfélagi...

Edit* 
Jújú, þetta er allt að komast á skrið, það er ekki víst að þið losnið við mig svona auðveldlega...
Þannig er mál með vexti að ég get ekki án ykkar verið, það er ekki hægt...Þannig að þetta endar trúlega með því að maður taki félagsfræðibrautina á næsta ári og salti það all rækilega...Þetta er bara svona smá hugmynd sem er verið að vinna í, en vonandi kemur eitthvað gott út úr þessuHlæjandi
     

19. maí 2006 klukkan 21:21
Geir Þórir Valgeirsson
12 athugasemdir
16maí

Eitt próf eftir

Jæja, í dag var félagsfræðin, erfiðara próf en maður bjóst við, en þetta hefst vonandi...Á morgun verður lestrarfrí og svo á miðvikudaginn verður seinasta en jafnframt erfiðasta prófið, Íslenska 403...Ekki nógu gott það og fer langur tími í það að læra undir þetta próf og vonandi nær maður því...Planið er að vakna klukkan 10 í fyrramálið og læra eins og villtr hestur allan daginn ásamt einhverju fleirri...Svo eftir prófið verður pakkað saman einn, tveir og bingó og brunað inn í sumarfríið...Byrjunin verður í þykkvabænum en það er verið að setja niður og vonar maður að hægt verði að hjálpa eitthvað...Svo þegar niðursettningurinn er búinn verður byrjað að vinna í bænum, á sendiferðabíl, við þökulagningar og eitthvað fleirra gotterí...Jæja, núna verður þetta ekki lengra og slæ ég botninn all harkalega úr hérna....
16. maí 2006 klukkan 02:42
Geir Þórir Valgeirsson
Engin athugasemd
15maí

Ég er að verða brjálaður

Svalursjitt..Núna erum Ég, Þobbi og Edda að læra undir fél 203 prófið sem er eftir nokkrar klst. Þetta er merkilega erfitt drasl. Ótrúlegt hversu mikið er hægt að rugla um þessa hluti...Félagslegur hreyfanleiki...WTF!!!!! Ég hef ekki hugmynd um þetta....Félagsleg lagaskiptin WTFx25!!!!! Ég er að verða geðveikur á þessu....En endilega skelliði ykkur í gestabókina, alltaf gaman að sjá hverjir koma og skoða síðuna
15. maí 2006 klukkan 03:42
Geir Þórir Valgeirsson
Engin athugasemd
14maí

Annskotinn

Jæja...Núna er maður aftur kominn á Laugarvatn...Var á flúðum í gær og í morgun í sumarbústað með fjölskyldunni. Gamla pakkið er síður en svo dottið úr djamminu eins og sást vel í gær. Pabbi, Afi og Raggi frændi voru orðnir nokkuð skrautlegir eftir að stóra táin var búin að fá eitthvað áfengt og flugu djókarnir hægri vinstri. Svo hitti ég Hugrúnu, mjög gaman að sjá hana aftur þó svo að það hafi nú ekki verið lengi..Einnig hitti maður Svövu sem var ekki sátt við okkur Benna...frábært það... En núna verður maður að fara að skella sér í bækurnar og klára þessi próf með stælSaklaus Tjátjá....
14. maí 2006 klukkan 18:37
Geir Þórir Valgeirsson
Engin athugasemd
13maí

Laugardagur

Júú...Það mun vera kominn Laugardagur...

Núna er ég að reyna að læra undir Félagsfræði 203, en gengur ekkert alltof vel. Anyway....Núna fer að líða að því að sumarið byrji, og byrjar það á því að ég fer í Þykkvabæinn til að setja niður kartöflur, nokk skemmtilegt þaðHlæjandi Svo þegar það er búið fer ég að vinna hjá TSH á sendiferðabíl, við þökulagningar og eitthvað meira. Þetta sumar verður frábært skal ég segja ykkur. Svo er stefnan tekin á Portúgla í lok sumarsins og er spennan farin að magnast heldur betur skal ég segja ykkur. Jæja, núna fer að líða að því að maður fari að moka út úr hesthúsinu, gefa þeim og skella sér í bað og loks brenna uppá Flúðir...Samt er ég engan vegin að nenna þvíÖskrandi Eeeeen hvað gerir maður ekki fyrir GrillveislurUllandi
13. maí 2006 klukkan 19:37
Geir Þórir Valgeirsson
Engin athugasemd
13maí

Ójá

Jæja...Núna er blog.central orðið gamalt og nýtt komið inn...Ákvað ég að prófa þetta aðeins og sjá hvernig til tekst. Það er ekki komið mikið inná síðuna, en það er allt í vinnslu, eða eins og einhver orðaði það svo fagmannlega. Þetta kemur allt með kaldaHlæjandi
*edit*
Jæja, núna eru fyrstu myndirnar konar inn og eru þær frá því að við skelltum okkur í hópferð í Fjölskyldu og Húsdýragarðinn um daginn...Einnig eru komnir linkar og eitthvað semmtilegt inn..Endilega commentið á þetta og segið hvað má betur faraGlottandi
Ps. Til hamingju með fertugsafmælið Mamma og Til hamingju með 17 ára afmælið Elva mínHlæjandi
13. maí 2006 klukkan 00:13
Geir Þórir Valgeirsson
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

Hver er Geiri???

Uhh...Góð spurning... Ég heiti Geir Þórir Valgeirsson og bý á Kjalarnesinu. Ég á 1 par af frábærum foreldrum og 3 lítil systkini sem eru nokk yndisleg líka. Ég er í námi og er á 2. ári á málabraut í Menntaskólanum að Laugarvatni, frábær skóli þar á ferð. Ég er á 18 ári og eldist með hverri sekúndunni sem líður. Bíllin sem að ég keyri um á er af gerðinni Mercedes Benz 230E. Jæja, ég slæ botninn hérna og vona ég að þú vitir eitthvað meira um mig núna.
Ef að þú vilt eða þarft að ná í mig, þá er ég með msn: snappsi123@hotmail.com

Auglýsing

Leit

Gagnasafn

Könnun

Fallinn??

Leikur dagsins